Sýslumaðurinn á Blönduósi
- Innheimtumiðstöð sekta og sakarkostnaðar
Hnjúkabyggð 33
540 Blönduós

Símanúmer: 455-2620
Símbréf: 455-2639
Netfang: sektir@syslumenn.is


domsmalaraduneyti.is

Vefur dómsmálaráðuneytisins

logreglan.is
Ýmsar upplýsingar um lög, reglugerðir, sektir og fl.

Vefur Umferðarstofu
Hér má m.a. finna sektarreikni fyrir hraðakstur og ölvunarakstur


althingi.is
Hægt að leita í lagasafni eftir númerum eða heiti laga

reglugerd.is
Vefur stjórnarráðsins; hægt að finna flestar reglugerðir

fangelsi.is

Vefur fangelsismálastofnunar, m.a. upplýsingar um vararefsingu og samfélagsþjónustu.

haestirettur.is
Hægt að lesa hæstaréttardóma

syslumenn.is

Upplýsingar um öll sýslumannsembætti landsins

domstolar.is
Vefur héraðsdómsdólanna. Héraðsdómar birtir

saksoknari.is
Vefur ríkissaksóknara

island.is
Upplýsingavefur Forsætisráðuneytisins;
leiðarvísir að opinberri þjónustu og liður í að auðvelda almenningi aðgang að henni

 

 

Á haustmánuðum 2005 ákvað Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra að innheimta sekta og sakarkostnaðar á landsvísu yrði flutt til sýslumannsembættisins á Blönduósi, en þessi verkefni voru áður hjá 26 sýslumanna- og lögreglustjóraembættum. Um er að ræða mál sem hlotið hafa endanleg málalok fyrir dómstólum eða stjórnvöldum landsins og öðrum Norðurlöndum.

 

Með þessari breytingu er stefnt að því að samræma, einfalda og efla innheimtuna svo og að ná fram auknu hagræði og samlegð með annarri starfsemi sýslumanns-embættisins.

 

Makaskipti voru höfð við bæjarstjórn Blönduóssbæjar um efstu hæð Hnjúkabyggðar 33, Blönduósi, sem áður hýstu bæjarskrifstofuna og húsnæði sýsluskrifstofunnar sem staðsett var á miðhæð hússins. Öll starfsemi innheimtumiðstöðvarinnar og sýsluskrifstofunnar fer nú fram á efstu hæð hússins sem löguð hefur verið að þörfum starfseminnar.

 

Mikil undirbúningsvinna og áætlanagerð fylgdi nýskipan innheimtunnar og var fljótlega ákveðið að áfangaskipta verkinu og hafa áætlanir gengið eftir. Í aprílmánuði sl. hófst starfsemin, en þá var Erna Björg Jónmundsdóttir, ráðin stjórnandi, ásamt fjórum starfsmönnum en í dag starfa þar alls 11 manns.

 

Verkefni þetta hefur fengið frábærar viðtökur hér í Húnaþingi og mikinn stuðning bæjarstjórnar Blönduóssbæjar. Til gamans má geta að 33 umsóknir bárust um ofangreind störf, allt heimamenn eða brottfluttir Húnvetningar, sem vildu flytja heim á nýjan leik.